152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:02]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Hér byrjaði umræðan á því að við fórum yfir málflutning gíslatökumannsins Sigurðar Inga Jóhannssonar, sem hendir hér hverju stórmálinu á fætur öðru aftur og aftur til þingsins eins og til að teppa dagskrána og sakar okkur síðan um að standa í málþófi. Það kunni Framsóknarflokkurinn ekki að meta þannig að upp kemur þingmaðurinn Halla Signý Kristjánsdóttir og hvetur forseta til að fara að hefta málfrelsi þingmanna. Hvert erum við komin, frú forseti?

Förum aðeins yfir 1. umræðurnar sem við höfum átt hérna síðustu daga. Ég sé t.d. mjög mikið eftir þeim tveimur klukkutímum sem fóru í að koma vitinu fyrir Willum Þór Þórsson varðandi beitingu nauðungar, frumvarp sem var óbreytt frá síðustu framlagningu og öllum var ljóst að væri handónýtt. Samt leggur hann það fram. Þetta eru tveir tímar sem við hefðum getað nýtt í eitthvað betra. En nei, ráðherrar Framsóknarflokksins (Forseti hringir.) splæstu þeim tíma í annað.