um fundarstjórn.
Frú forseti. Mínútulangt erindi. Ég er í hópi þeirra þingmanna sem bera ómælda virðingu fyrir Alþingi og hlutverki þess. Vegna þess að ég ber virðingu fyrir Alþingi vil ég að Alþingi fái að sinna hlutverki sínu. Alþingi er samkunda 63 þingmanna sem allir hafa hlutverki að gegna, ekki bara stjórnarþingmenn. Þegar fulltrúar Framsóknarflokksins koma hér upp, eins og hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir, og kvarta undan því að við séum að ræða efni en ekki form þá finnst mér það segja ansi mikinn sannleika um erindi Framsóknarflokksins í ríkisstjórn.