152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:05]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég verð að taka undir orð Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, hv. þingmanns Viðreisnar. Ég ber líka mjög mikla virðingu fyrir Alþingi og hlutverki þingsins og þessa salar sem er í rauninni málstofa lýðræðis á Íslandi. Það skiptir mjög miklu máli að um Alþingi sé gengið sem það musteri en ekki sem einhverja afgreiðsluskrifstofu ríkisstjórnarinnar, eins og ráðherrar hafa því miður leyft sér að láta frá því að þessi ríkisstjórn tók við völdum fyrir rúmum fjórum árum. Virðing þeirra fyrir þeim störfum sem hér eru innt af hendi er því miður mjög takmörkuð og það er sorglegt, hv. þm. Hilda Jana Gísladóttir. Það er sorglegt hvernig ráðherrar og stjórnarliðar umgangast Alþingi Íslendinga. Ég tek undir það.