152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:07]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Sem betur fer hefur traust til Alþingis farið vaxandi að undanförnu. Ég verð að segja það að ég er búinn að sitja hérna og hlusta á þessa umræðu í dágóða stund og hefur fundist hún hreint afbragðs skemmtileg, það verður nú að segjast. Við erum kannski ekki venjulega undir þessum lið að fara um víðan völl, við erum aðallega að tala um það sem hv. þingmaður Framsóknarflokksins nefndi hér áðan. En gott og vel, ég get alveg setið undir þessu, ekkert vandamál mín vegna. Þingmönnum hefur verið tíðrætt um Framsóknarflokkinn og mér er það auðvitað mjög ljúft og skylt að koma og þakka fyrir þá umræðu. Hún hefur verið mjög fín. Mér finnst alltaf gott þegar er minnst á flokkinn minn. Hann er að sjálfsögðu í ríkisstjórn og stóð sig afbragðs vel í kosningunum í haust og eðlilegt að þingmenn takist hér á, eðlilegt að þeir nefni það sem þeim finnst að betur megi fara. Þannig að ég sé ekkert að því.