um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Hér kom hv. þingmaður Framsóknarflokksins upp og kvartaði yfir því hvernig við nýttum liðinn fundarstjórn forseta. En hvers vegna skyldum við hafa verið í fundarstjórn forseta megnið af tímanum? Er það kannski vegna þess að dómsmálaráðherra er búinn að velja að vanvirða þingið, fara í bága við lög og beina þeim fyrirmælum til undirstofnunar sinnar að vinna einfaldlega ekki vinnu sem henni er skylt að vinna samkvæmt lögum um ríkisborgararétt? Og það án þess að forseti Alþingis hafi verið tilbúinn að bregðast við að nokkru leyti öðru en að segja humm og ha og að hann ætli að spjalla og pæla. Þetta er ekki búið að laga. Þetta er vissulega umræða um efni en ekki form en þetta er umræða um þetta þing hér. (Forseti hringir.) Þetta er umræða sem skiptir máli (Forseti hringir.) fyrir okkur sem störfum hér og ef það væri einhver dugur (Forseti hringir.) í forseta og í þessum meiri hluta þá þyrfti þetta ekki að vera svona.