152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:10]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Þegar ég kom hingað og gekk inn í þennan þingsal í haust var ég fullur lotningar, eins og hv. þm. Hilda Jana Gísladóttir nefndi svo ágætlega áðan. Það er mikil virðing fólgin í því að fá að vera á hinu háa Alþingi og taka þátt í að móta samfélagið okkar. En ég var fljótur að læra að þetta var bara ekkert alveg eins og þetta leit út á yfirborðinu. Hér er verið að gera hrossakaup fram og til baka og verið að valta yfir mann og annan. Þannig að maður þarf að læra ný vinnubrögð og læra bara fantaskapinn af því að hann er til staðar hérna. Hér er verið að skreyta sig í aðdraganda kosninga með alls konar hlutum. Ég var fullur tilhlökkunar að sjá þetta farsældarfrumvarp fara í gegn. En hvar er það? Sveitarfélögin voru á fullu að undirbúa þetta. En hvað? Svo er þessu bara stungið ofan í skúffu.