um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég er líka nýr þingmaður og ég er svo sem líka að læra og er mjög hissa á ýmsum vinnubrögðum. Sérstaklega er ég hissa á þessum kvörtunum frá stjórnarliðum. Mér finnst þetta svo miklir doðrantar og ég fyllist mjög mörgum spurningum og hér eru bara örfáir stjórnarliðar sem taka þátt í samræðu.
Af því að ég er að koma hingað upp undir fundarstjórn forseta þá átti ég víst að beina orðum mínum til hans um hvernig þessu þingi er stjórnað. Þá vil ég bara leggja til að hún hlutist til um það að við fáum líka einhver mál hingað inn, við sem erum í stjórnarandstöðu.