um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Það er margt búið að koma fram. Ég vil undirstrika að frá því að ég kom inn á þing 1999, rúmlega 20 eða 22 ár síðan, eða hvað það er, þá er enn þá jafn gaman og jafn spennandi að koma inn í þingsalinn, fara upp í pontu og taka þátt í umræðum. Það er alltaf jafn dásamlegt, þótt það hljómi svolítið skringilega, að takast á um mál af því þetta er pólitík. Þetta er pólitíkin sem er hvati þess að við förum í framboð og tölum fyrir því að ganga í ESB, fyrir því að vera með stöðugan gjaldmiðil, fyrir réttlæti í samfélaginu, með grænu samfélagi eða hvað það er sem við viljum tala fyrir hverju sinni. Og geta síðan farið út í matsal, eins og við höfum alltaf getað gert og getum enn, og spjallað saman. Það sem ég er hins vegar óvön er að mér finnst vera annar Framsóknarflokkur en þegar ég byrjaði. Við erum að upplifa ráðherra (Forseti hringir.) sem eru kvartsárari en áður. Það er nýr veruleiki fyrir mér.