um fundarstjórn.
Frú forseti. Mér þykir svolítið skemmtilegt hvernig þingmenn fara hérna á trúnó og upplýsa hversu langan starfsaldur þeir eiga að baki. Ég ætla að taka þátt. Ég er ekki svo ný, þetta eru samt ekki nema fimm, sex ár, en ég er samt líka að upplifa nýjan raunveruleika hér. Þetta hefur ekki verið svona þau önnur ár sem ég hef starfað hérna, þessi úlfúð, þetta óþol ríkisstjórnarinnar fyrir pólitík, held ég að sé hægt að súmmera þetta upp. Það er einfaldlega þannig. Nú er ákall um að við lögum þetta. Hér í árdaga, þegar menn voru að átta sig á því að stundum meiddi fólk aðra af því að því leið illa heima hjá sér — ég velti fyrir mér hvort kannski líði ríkisstjórninni illa heima hjá sér og kannski geti hún svolítið skoðað þau mál betur, lagað það sem þarf að laga þar og komið svo hingað inn í þingsal (Forseti hringir.) og hagað sér eins og fólk. Þá getum við haldið áfram að vinna í þágu lands og þjóðar.