152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

um fundarstjórn.

[15:18]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Mig langar að taka undir orð hv. þm. Þorbjargar Sigríði Gunnlaugsdóttur um virðingu við Alþingi. Hér áðan var talað um traust til Alþingis. Tveir þriðju þjóðarinnar treysta ekki Alþingi. Frábært að tala um að traustið hefði farið upp vegna þess að fyrir tíu árum síðan var það einn tíundi af þjóðinni sem treysti okkur ekki. Það er mikilvægt að við hér inni hættum að talast ekki við og förum að ræða málin og taka þátt í umræðunum, að við semjum um framgang. Við hæstv. innviðaráðherra sem er byrjaður að tala um málþóf langar mig að segja: Við erum bara rétt að byrja að koma skoðunum okkar á framfæri. (Forseti hringir.) Hann getur bara beðið eftir að Gísli fari í málþóf því að ég á ættarmet upp á níu og hálfa klukkustund sem ég á eftir að slá.