fjarskipti .
Frú forseti. Hv. þingmaður kallaði eftir því að við myndum láta fara fram greiningu á ábatanum af því að lengja binditíma viðskiptavina vegna þess að hv. þingmann grunar að aukinn veltuhraði gæti leitt til dýrari þjónustu hjá fyrirtækjunum. Ég held að sú greining skipti máli af því að ég get alveg séð fyrir mér hina áttina, að aukinn veltuhraði leiði til aukinnar samkeppni um lægra verð og betri þjónustu. Nú hefur hv. þingmaður verið formaður umhverfis- og samgöngunefndar síðustu skipti sem þetta mál hefur komið fyrir þingið og hæstv. ráðherra talaði um að þetta mál hefði fengið mikla þinglega umræðu áður. Það var talað um það í korter í 1. umr. í fyrra skiptið, í þrjú korter í 1. umr. í annað skiptið. Þingleg umræða átti sér stað innan nefndar, en endurspeglar það á einhvern hátt mikilvægi þessa máls að það sé búið að tala um það (Forseti hringir.) á tveimur þingum samanlagt í klukkutíma? Þetta eru öryggisinnviðir, þetta er neytendamál (Forseti hringir.) og þetta er grundvöllur nýsköpunar á næstu áratugum og þingið er bara búið að splæsa klukkutíma í þetta.