fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Fyrst varðandi greininguna á binditímanum. Það er hárrétt hjá hv. þingmanni að veltuhraði viðskiptavina getur einmitt við ákveðnar aðstæður keyrt niður verð á markaði. En það sem mig grunar að einstaklingar gætu náð fram væri í rauninni að festa inni lág verð á löngum samningi sem væru líkleg til að flökta meira ef binditíminn er skammur. En þetta finnst mér að við þurfum að gera á grundvelli einhverrar greiningar en ekki bara af því að við viljum ekki vera eins og Danir með sex mánuði og við viljum ekki vera eins og Kóðinn með 24 og þá er farin einhver millileið til að segja eitthvað; er ekki bara best að segja 12 mánuðir? Það eru ekki góð rök í málinu. Þannig að til að svara þeirri spurningu — ég biðst afsökunar, ég fattaði ekki að ég hefði bara eina mínútu. Hv. þingmanni er velkomið að bæta við spurningu og ég skal tala hraðar í seinni umferð.