fjarskipti .
Frú forseti. Ég fæ kannski að halda áfram með það sem hv. þingmaður náði ekki að svara í fyrri umferð vegna þess að mér finnst saga þessa máls, forsaga þessa máls, sýna alveg ofboðslegt sinnuleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart þessum málaflokki. Mér finnst það líka endurspeglast í litla Mílumálinu sem við fengum fyrr í vetur þar sem okkur var eiginlega lofað að núna í vor myndum við klára þetta stóra fjarskiptamál og myndum líka klára hálfgert systurmál sem hefði komið í veg fyrir Míluvandann, sem er frumvarp forsætisráðherra um rýni erlendrar fjárfestingar í þjóðhagslega mikilvægum innviðum. Nú berast þær fréttir úr því ráðuneyti að því frumvarpi eigi bara að fresta. Kannski erum við þar komin með upptaktinn að öðru sinnuleysismómenti hjá ríkisstjórninni gagnvart Mílumálum framtíðarinnar. (Forseti hringir.) Ríkisstjórnin var ekki nægilega á verði þegar Mílumálið var í uppsiglingu (Forseti hringir.) vegna þess m.a. að það vantaði fjarskiptalögin en ætlar núna ekki að vera nægilega á verði þótt við klárum fjarskiptalögin af því að það vantar hitt frumvarpið.