fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Þetta er auðvitað hárrétt. Hjá ríkisstjórnarflokkunum er mikið talað þessar vikurnar og mánuðina en svo bara gerist ekki neitt. Það er meginreglan sem blasir við okkur. En til að koma að seinni spurningunni úr fyrra andsvari varðandi umfang umræðunnar þá hefur umræða hér í þingsal vægast sagt verið hófleg á fyrri stigum miðað við umfang málsins. Þetta er nefnilega algert risamál miðað við mikilvægi fjarskipta til allrar framtíðar og í því ljósi gagnrýndi ég nú mjög harkalega þennan hringlandahátt, með fullri virðingu fyrir hæstv. ráðherra fjarskiptamála sem er ekki í salnum. Mér hefði þótt skynsamlegra að fjarskiptamálin væru áfram hluti af innviðaráðuneytinu sem nú hefur verið formað. En ég get sagt fyrir mig að mér kom mjög á óvart, svo það sé vægt orðað, þegar frumvarpið dó hér (Forseti hringir.) á síðasta þingi, jafn mikilvægt og það er.