152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[15:42]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína og ég hjó sérstaklega eftir umræðu hv. þingmanns um 87. gr. sem fjallar um öryggishagsmuni vegna uppbyggingar fjarskiptaneta. Þetta hljómar allt rosalega vel en við vitum öll að þetta er vegna þess að hér fyrir nokkrum misserum eða árum síðan fengu Bandaríkjamenn bakþanka um notkun á Huawei-sendum í fjarskiptanetum hjá sér, nokkuð sem þeir töldu jafnvel vera þjóðaröryggismál. Nú er það þannig að bæði Nova og Vodafone, þeirra 5G net og að ég held 4G líka, nota þetta meðan Síminn hefur verið í rassvasanum á Ericsson í tuga ára. (Forseti hringir.) Hv. þingmaður talaði um að það hefði verið mikil umræða um 87. gr. sem hefði ekki náð að komast inn í þetta frumvarp. (Forseti hringir.) Gæti hv. þingmaður gefið einnar mínútu útgáfuna af því hvernig sú umræða var?