fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Þegar málið var rætt í fyrra þá var 87. gr. alfa og omega umræðunnar og vinnslunnar í nefndinni þó að vissulega hafi aðrir þættir frumvarpsins verið unnir með hefðbundnum hætti. Við þeim sem fylgdust með umræðunni blasti að þetta var kjarnaatriði annars vegar út frá þjóðaröryggislegum sjónarmiðum og hins vegar áhyggjum fjarskiptafélaganna af því að net hvers og eins félags yrðu metin sjálfstætt, sem eru auðvitað bara hlutur sem ég leyfi mér að fullyrða að sé óraunhæfur á svona litlum markaði eins og við búum við hér á Íslandi. Það var settur á laggirnar undirhópur innan umhverfis- og samgöngunefndar í fyrra þar sem áttu sæti þrír þingmenn sem unnu þessa 87. gr. áfram. Niðurstaðan úr þeirri vinnu var, að ég held, mjög góð lausn sem, eins og ég sagði í ræðu minni áðan, (Forseti hringir.) vekur hjá mér mikla furðu að hafi ekki ratað inn í endurflutt frumvarp ráðherra að þessu sinni.