fjarskipti .
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir þessa ágætu ræðu. Það er kannski 87. gr. sem er athyglisverðust í umræðunni um þetta frumvarp. Þar erum við að tala um ákvæði sem hefur þann tilgang að gefa ráðherra heimild til að kveða á um það í reglugerð að búnaður í tilteknum hlutum innlendra farneta skuli í heild, eða í ákveðnu hlutfalli, vera frá framleiðanda í ríki sem Ísland á í öryggissamstarfi við, eða í ríki innan EES.
Hv. þingmaður fór aðeins yfir það áðan að lendingin í því frumvarpi sem hér er verið að tala um væri honum kannski ekki alveg að skapi, þetta hefði litið betur út eins og það var lagt upp í tillögum starfshóps. (Forseti hringir.) Ég er svolítið forvitinn að heyra aðeins meira um þetta, hvað það er sem aðallega truflar hv. þingmann í 87. gr. eins og hún er lögð upp í frumvarpinu.