fjarskipti .
Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Því miður er hann að staðfesta það sem mig renndi í grun. Mér finnst þetta bara svo alvarlegt í því ljósi að undirliggjandi hagsmunir eru ekki bara hagsmunir neytenda og hagsmunir samkeppni og fjarskipta heldur grundvallarhagsmunir ríkisins. Þarna er tungutak um að við höfum burði til að veita viðspyrnu gegn náttúruvá. Það er verið að ræða um öryggisógnir, fjarskiptaöryggi, þjóðaröryggi er undir. Ég á kannski ekki spurningu beint fyrir þingmanninn en er hugsi yfir þessu. Svo sáum við hver örlög Mílumálsins urðu sem var einhvern veginn að það væri verið að semja regluverk í kringum sölu fyrst eftir söluna. En síðan fengum við að heyra röksemdir um að þarna væri frumvarp sem tengist ekki beint Mílusölunni, búið að kroppa út ákveðnar greinar. Það vantaði alltaf samfelluna og söguskýringuna á því hvers vegna ríkisstjórnin treysti sér ekki til að leggja fram heildstætt frumvarp með heildrænni nálgun og hugsun.