fjarskipti .
Frú forseti. Ég er ekki komin hingað upp til að orðlengja neitt en ég velti fyrir mér að við vorum hér í síðustu viku að fjalla um fjölmörg mál á málefnasviði hæstv. heilbrigðisráðherra sem lét sig ekki vanta hér í þingsal heldur sat undir umræðu, hlustaði á það sem við höfum að segja um öll þau þingmál sem hann var að leggja fram þá og brást við með því að afturkalla eitt málið sem augljóslega var meingallað. Nú fjöllum við um þennan stóra lagabálk sem er verið að leggja fram í fyrsta skipti af núverandi ráðherra málaflokksins, hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem er hvergi hér. Ég velti fyrir mér: Þetta er 1. umr. Þetta er ekki 2. umr. eftir vinnu nefndar heldur 1. umr., væri ekki eðlilegt að hæstv. ráðherra væri í salnum á meðan málið er til umfjöllunar?