fjarskipti .
Frú forseti. Hér áðan ræddum við skoðanir stjórnarliða á lýðræðislegri umræðu hér í sal. Þá kom upp í pontu hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir og sagði að þetta væri ekki umræðan sem hún reiknaði með, þetta væri svona „rant“ sem ætti sér stað í fundarstjórn forseta. Ég velti fyrir mér hvort forseti hefði kannski átt að ávíta þingmanninn fyrir þennan gildisdóm yfir umræðu þingmanna. En það sem hv. þingmaður sagðist sakna var að við nýttum þessa málstofu til að ræða mál og skiptast á skoðunum. Þessu er ég nefnilega alveg sammála en ég sakna sárlega hv. þingmanna stjórnarflokkanna úr allri umræðu. Þeir hafa varla sést hér í allan vetur, flestir bara halda sig fjarri ræðustól í stjórnarmálum allan marsmánuð. (Forseti hringir.) Ég tek undir spurningu hv. þingkonu, Helgu Völu Helgadóttur: (Forseti hringir.) Hvar er ráðherra málaflokksins? Er fjarskiptamálið það skipreka að hún ætlar ekki einu sinni að fylgja því úr hlaði?