fjarskipti .
Virðulegur forseti. Ég mun persónulega alveg jafna mig á því að hæstv. ráðherra hafi ekki setið undir ræðu minni hér áðan en það er engu að síður þannig að þetta er 1. umr. málsins, mál þar sem sérstaklega einn angi þess er raunverulega flókinn þó að lausnin liggi fyrir. En það að ráðherrann hafi ákveðið að leggja málið fram án þess að sú lausn sé hluti málsins gerir það enn mikilvægara að ráðherrann hlusti á þau sjónarmið sem hér koma fram vegna þess að við þekkjum hvernig það er þegar ráðherrarnir hafa komist í gegnum 1. umr. Þá er þetta orðið vandamál nefndanna og annarra að hafa áhyggjur af þeirri umræðu sem fram fer. Ég held að það væri til mikilla bóta og alla vega athuga hvort hæstv. ráðherra er í húsi, beini því til virðulegs forseta.