152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[16:03]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég kem hérna upp til að bregðast við orðum hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur áðan í fundarstjórn forseta þar sem hún hélt því fram að athugasemdir okkar um framkomu sérstaklega ráðherra Framsóknarflokksins en einnig bara stjórnarliða almennt í garð þingsins væru einhvers konar „rant“, svo ég sletti nú eins og hv. þingmaður gerði, með leyfi forseta. Mér finnst þetta athugavert vegna þess að hér erum við einfaldlega að koma á framfæri, eins og ég sagði, athugasemdum um mikla vanvirðingu sem þinginu er sýnd og lélega stjórn á málum í þinginu. Ef það er „rant“ mætti hv. þingmaður kannski velta því fyrir sér hvort það væri ekki bara hægt að vinna betur með okkur og sleppa þá við rausið í okkur. Það virðist hins vegar ekki einu sinni vera til í ímyndunarafli hv. þingmanna (Forseti hringir.) að þeir hafi mögulega eitthvert val um það hvernig samstarfið fer fram á Alþingi Íslendinga.