fjarskipti .
Frú forseti. Vegna þess hversu mikilvægir hagsmunir eru og við erum komin á þann stað á Alþingi að við erum í lágmarkskröfum gagnvart ríkisstjórninni þá tel ég rétt að óska eftir því með formlegum hætti að ráðherrar verði boðaðir hingað inn í sal til að taka þátt í umræðum um þetta mál. Undirliggjandi eru reyndar þannig hagsmunir — við erum að tala um fjarskipti á þeim tímum sem við lifum í dag — að það hefði verið góður bragur á því að hér sæti utanríkisráðherra. Það hefði verið góður bragur á því að hér sæti forsætisráðherra. Það segir dálítið um stöðu málsins að það hvarflar ekki að okkur að biðja aðra ráðherra en þann sem mælir fyrir málinu um að sýna viðveru í sal. En ég óska eftir því að hæstv. ráðherrar komi í salinn, hlýði á umræðuna og taki þátt í henni, kynni þetta mál sitt og ræði það og rökræði á Alþingi Íslendinga.