fjarskipti .
Frú forseti. Það kemur manni óneitanlega á óvart að enginn stjórnarliði telji ástæðu til að taka til máls um þetta risastóra mál sem við erum að ræða hérna í dag. Áðan kom hingað upp hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir og kvartaði undan því að það væru engin alvöru skoðanaskipti að eiga sér stað, bara eitthvað „rant“, en það er nú kannski þannig að ef stjórnarliðar væru svolítið duglegri að taka til máls þá ættu sér stað aðeins fjörugri og meira gefandi skoðanaskipti hérna í salnum. Annað sem ég finn mig knúinn til að benda á er að nú hefur tvisvar sinnum gerst á undanförnum vikum að umræða hér í þessum sal, 1. umr. um stjórnarmál, leiddi til þess að ráðherrar áttuðu sig á því að málin voru stórkostlega gölluð og drógu þau til baka. (Forseti hringir.) Í ljósi þess finnst mér aðkallandi að hæstv. ráðherrar sitji hér með okkur og hlýði á þessa umræðu.