fjarskipti .
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (um fundarstjórn):
Virðulegur forseti. Það er alltaf gott þegar maður er vinsæll. Ég er búin að vera hér, þetta er fimmti dagurinn sem frumvarpið er á dagskrá þingsins. Ég var mætt áðan þegar hv. þingmenn voru í langri umræðu um fundarstjórn frú forseta, þurfti persónulega víkja í örskamman tíma frá þinginu og þá segja hv. þingmenn að áhugi ráðherra og þingmanna sé lítill á að ræða þetta mikilvæga mál. Ég frábið mér svona vitleysu, svona popúlisma þegar mál eru á fimmta degi, held ég, á dagskrá. Ég er búin að taka frá dagskrá dag eftir dag til að sitja hér og ræða þetta mikilvæga mál sem svo gjarnan þarf að komast sem fyrst til hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Hér er ég glöð í allan dag að klára að ræða málið við ykkur, var mætt hér áðan og verð hér áfram og hvet ykkur til að fara að ræða um einhver málefni í þessum þingsal.