152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[16:17]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég fagna því að hæstv. ráðherra sé kominn í salinn en viðkvæmnin er nú sennilega óþörf, a.m.k. hvað mig varðar. Yfirlýsingar mínar um áhugaleysi ríkisstjórnarinnar á þessum málum sneru að því að þessir sömu flokkar hafi slegið af á liðnu þingi og nú sé málið svo til óbreytt að koma fram jafn seint og raunin er, þannig að því sé haldið til haga. Ég held að það verði til mikilla bóta og ég vona að hæstv. ráðherra taki þátt í umræðunni. Ég er því miður í þeirri stöðu að ég á ekki nema eina fimm mínútna ræðu eftir en mér finnst líklegt að ég þurfi að koma ákveðnum sjónarmiðum að síðar í umræðunni. Ég hvet ráðherra til að taka með málefnalegum hætti og sem mest þátt í þeirri umræðu um þetta mikilvæga mál sem fram undan er en gagnrýni áfram hversu seint það er fram komið og hvaða meðferð það hlaut á liðnu þingi.