fjarskipti .
Virðulegi forseti. Ég vil biðja hæstv. ráðherra um að sýna því skilning að mörg okkar sem hér sitjum höfum núna tvívegis á síðustu vikum lent í því að sitja hérna svoleiðis fram eftir að ræða um frumvörp sem kemur svo bara í ljós að eru of illa unnin til að vera tæk til þinglegrar meðferðar og ráðherrar hafa neyðst til að draga til baka. Þannig að þegar rætt er um þetta mál þá finnst okkur eðlileg krafa að ráðherra sitji með okkur og hlusti og taki þátt. Þegar ráðherra hverfur fer maður að velta því fyrir sér hvort það fari kannski eins fyrir þessu máli og hinum, hvort ráðherra standi ekki örugglega á bak við þetta mál. Að öðru leyti vil ég bara benda á að það er stjórnarmeirihlutinn sem fer með dagskrárvaldið hér á þinginu og stýrir (Forseti hringir.) forgangsröðun mála. Það er ekki við stjórnarandstöðuna að sakast og við erum bara rétt að byrja að ræða þetta ágæta mál.