152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[16:21]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vildi koma hér og upplýsa þingheim um að það er ástæða fyrir því að það tafðist að koma málinu til nefndar og sú ástæða er mjög góð af því að hún sýndi það að hæstv. ráðherra hlustaði á umhverfis- og samgöngunefnd. Það var umhverfis- og samgöngunefnd sem gerði kröfu um það til ráðuneytisins í fyrra fjarskiptamálinu að endurskoða ákvæði frumvarpsins um orku- og öryggisfjarskipti. Það er nýjasta ákvæðið í þessu frumvarpi sem við ræðum hér sem ráðuneytið bætti inn eftir nefndarálit. Þar af leiðandi tók lengri tíma fyrir ráðuneytið að klára málið og koma með það hingað og hæstv. forseti hefur einmitt fært þetta mál fram fyrir önnur mál sem voru upphaflega fyrr á dagskránni, þannig að mér sýnist þetta allt vera í góðum farvegi.