152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[16:22]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég held að það hafi verið gott að heyra útskýringar hv. þm. Vilhjálms Árnasonar. Þetta er gríðarlega mikilvægt mál þannig að ráðherrar þurfa að vanda sig. Við upplifðum það í tengslum við Mílumálið að það virtist koma þáverandi iðnaðarráðherra og ráðherra fjarskipti algjörlega í opna skjöldu þannig að við þurfum að vera bæði með belti og axlabönd þegar við skoðum þetta mál og ekki síst út frá þjóðaröryggi, en þannig hef ég verið að nálgast þessi mál.

Ég vil fagna því að ráðherra er kominn í salinn og ég vona að við getum farið að tala um það sem skiptir máli og þess vegna erum við að ræða þetta mál af þeirri dýpt sem við höfum verið að gera. Það er engin nýlunda fyrir okkur í stjórnarandstöðunni að þurfa að lagfæra mál. Það gerðist ítrekað hér á síðasta kjörtímabili. Það gerðist líka ítrekað að við þurftum að redda ríkisstjórninni fyrir horn vegna ágreinings innan eigin raða. Það er hægt að nefna hér þriðja orkupakkann eða þungunarrof og fleiri mál sem við í stjórnarandstöðunni þurftum að hjálpa (Forseti hringir.) ríkisstjórninni með. En ég vil fagna því sérstaklega að ráðherra (Forseti hringir.) er mættur í salinn og hvet ráðherra til að taka virkan þátt í umræðunni. Ég tel (Forseti hringir.) að það verði mjög upplýsandi og gefandi.