152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[16:24]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Mér er sérstök ánægja að taka til máls, takk fyrir það. Mikilvægt er þetta mál, ég held að við séum öll sammála um það, sem varðar lagaramma utan um fjarskiptakerfi Íslands. Það hefur verið bent á að þetta snerti við neytendum, þetta snerti öryggi, þetta snerti við nýsköpun, þetta snúist um það hvort jafnræði fólks til búsetu sé virt eftir því hvar það býr á landinu og þar að auki eru stór álitaefni sem varða persónuvernd og friðhelgi einkalífs í þessu frumvarpi. Í umræðunni sem átti sér stað hér fyrir helgi kom fram hjá hæstv. ráðherra að hún teldi málið hafa fengið mikla þinglega umræðu vegna þess að það hefði komið fyrir tvö fyrri löggjafarþing og þar verið mælt fyrir því og það sent til nefndar. Ég skal taka undir þau orð að því leyti til að það fékk mikla umfjöllun í umhverfis- og samgöngunefnd í bæði skiptin en sú umræða sem átti sér stað hér í þingsal endurspeglaði engan veginn mikilvægi málsins. Í fyrra skiptið sem mælt var fyrir málinu stóð umræðan í 15 mínútur samtals. Korter var tekið hér í þingsal í að ræða þetta stóra mál. Í seinna skiptið sem mælt var fyrir þessu máli fundu þingmenn þrjú korter til að ræða það, sem að öllum öðrum málum ólöstuðum er eitt af stærri málum sem fara í gegnum þingsalinn.

Skoðum þetta síðan aðeins í samhengi við litla fjarskiptamálið sem við fengum fyrr í vetur í kjölfar á Mílumálinu. Það átti sér stað efnisleg umræða í þingsal um það mál í fimm klukkustundir þótt þar hafi bara verið tekið á afmörkuðum þáttum þess sem er nú lagt fram sem heildarfrumvarp til laga um fjarskipti. Fimm klukkustundir voru settar í Mílumálið vegna þess að ég held að þá hafi þingheimur loksins vaknað til fullrar vitundar um það hversu miklir hagsmunir eru undir. Þá mætti fólk og setti á borðið þau sjónarmið sem hefði kannski þurft að setja á borðið í fyrri tvö skiptin sem mælt var fyrir málinu en er gott að heyra að nú er verið að ræða þetta í þriðja skipti sem heildarendurskoðunin er lögð fram.

Ég ætla tímans vegna að reyna að einskorða mig við nokkuð afmarkaðan hluta þessa máls. Ég ætla ekki að eyða allt of miklum tíma í að ræða það sem mætti kannski kalla sinnuleysi ríkisstjórnarinnar gagnvart þjóðaröryggi og upplýsingaöryggi almennt sem birtist t.d. í því að Mílumálið svokallaða hafi komið til þingsins eftir að Mílumálið var um garð gengið, við fengum frumvarpið of seint en það var vegna þess að það frumvarp sem við ræðum hér í dag hafði fengið að daga uppi í nefnd tvisvar. Eins og kom fram í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar var ekkert að vanbúnaði að afgreiða það úr nefnd á síðasta vetri. Þá hefði heildarramminn um fjarskiptin, heildarlagaramminn, verið á miklu betri stað þegar Mílumálið sjálft kom upp. Það mál birtist svo sem ekkert eins og þruma úr heiðskíru lofti heldur höfðu stjórnvöld tveggja ára aðdraganda að Mílumálinu ef við skoðum bara opinberan fréttaflutning, mögulega lengri ef einhver trúnaðarsamtöl hafa átt sér stað milli fulltrúa stjórnvalda og aðila á fjarskiptamarkaði. En þetta er kannski meira sagnfræði en nokkuð annað og ég ætla ekki að eyða mörgum orðum í það.

Það sem mig langar að ræða er 89. gr. frumvarpsins, nánar tiltekið 3. mgr. þeirrar greinar. 89. gr. fjallar um það sem hefur verið kallað gagnageymd, sem er það að fjarskiptafyrirtæki geymi gögn um fjarskiptaumferð notenda. Í 89. gr. er í 1. og 2. mgr. fjallað um það sem fyrirtækin þurfa til að geta þjónað viðskiptavinum sínum. Eðli máls samkvæmt þurfa fjarskiptafyrirtæki að hafa einhverjar upplýsingar um fjarskiptaumferð notenda til þess t.d. að geta bara afgreitt þau fjarskipti, til að geta tengt notendur og til að geta síðan gert reikninga vegna þeirrar notkunar sem á sér stað, þannig að einhver gagnaöflun er nauðsynleg. En það sem 3. mgr. gerir er að þar er í gildandi lögum lögfest heimild, eða ekki heimild svo ég noti rétta orðið þá er það skylda fyrirtækjanna að varðveita lágmarksskráningu gagna um fjarskiptaumferð notenda í sex mánuði. Að varðveita allar upplýsingar um alla fjarskiptanotkun allra notenda í sex mánuði í þágu rannsóknar sakamála og almannaöryggis. Þessi breyting var gerð á Íslandi nánast samhliða því að hún var gerð í Evrópu. Þessi breyting var gerð með hliðsjón af tillögum sem síðar urðu að tilskipun 2006/24/EB um varðveislu fjarskiptaupplýsinga. En sú gerð var síðan aldrei tekin upp í EES-samninginn þannig að þetta var innleiðing að frumkvæði Íslands á einhverju sem hefði mögulega og jafnvel væntanlega borist til okkar í gegnum EES-samninginn en gerði það ekki, m.a. vegna þess að áður en til þess kom að ákveðið var að þessi gerð væri EES-tæk féll dómur hjá Evrópudómstólnum þar sem tilskipunin var úrskurðuð ógild. Dómurinn vísaði til tveggja grundvallarréttinda, annars vegar friðhelgi einkalífs og hins vegar vernd persónuupplýsinga og var það niðurstaða dómstólsins að tilskipunin bryti gegn meðalhófsreglu í ljósi þess hversu víðtækt þetta inngrip í friðhelgi einkalífs væri.

Þetta kemur kannski helst á óvart vegna þess að á þetta hefur verið bent, ekki bara af fólki í félagasamtökum sem berjast fyrir friðhelgi einkalífs heldur hefur verið bent á þetta af stjórnvöldum sjálfum. Ég er með hér fyrir framan mig drög að frumvarpi til laga sem forsætisráðuneytið setti í samráðsgáttina 2018, liggur mér nærri að segja, um afnám gagnageymdar, um afnám þessarar 3. mgr. þess sem er nú 89. gr. frumvarpsins en er sem sagt 3. mgr. 42. gr. gildandi fjarskiptalaga. Þetta frumvarp var lagt fram eftir vinnu svokallaðrar tjáningarfrelsisnefndar og hún benti einfaldlega á það í greinargerð frumvarpsins, eins og það lá í samráðsgáttinni, að þetta þyrfti að gera í þágu friðhelgis einkalífs og persónuverndar og hefði auk þess jákvæðar afleiðingar fyrir tjáningarfrelsi. Þarna vísar nefndin til þess sem átt hefur sér stað úti í Evrópu þar sem Evrópudómstóllinn úrskurðaði tilskipunina ógilda og þrátt fyrir að tilskipunin hafi ekki verið tekin beint upp í þessu frumvarpi þá sé eðlilegt, vegna þess að þetta dómafordæmi sýni verulega meinbugi á þeim lagafyrirmælum sem kveðið er á um í 3. mgr., þá sé augljós ávinningur af því að fella málsgreinina úr gildi og töluvert meiri ávinningur af því heldur en hugsanleg neikvæð eða íþyngjandi áhrif þess að fella hana úr gildi. Þar er sérstaklega átt við möguleika lögreglu til þess að verða sér úti um upplýsingar um fjarskiptanotkun í tengslum við rannsókn sakamála eða almannaöryggi vegna þess að um þær heimildir eru einfaldlega búið í öðrum greinum laganna og frumvarpsins þar sem sækja þarf dómsúrskurð og gera ákveðna hluti til að þessum upplýsingum verði safnað, frekar en, eins og er í lögunum og frumvarpinu, að upplýsingum sé safnað um allan almenning og allar tegundir fjarskipta án þess að leitast sé við að afmarka gagnaöflunina með hliðsjón af þeim markmiðum sem stefnt er að í hverju tilviki fyrir sig.

Ég nefni þetta svona ítarlega, frú forseti, vegna þess að um þetta var rætt fyrir helgi og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir flutti ágæta ræðu þar sem hún fór yfir þessi álitaefni og hvers vegna gagnageymd væri mikill gallagripur í lagasafninu, þessi óhefta gagnageymd. Ég varð dálítið hissa á þeim andsvörum sem komu frá hæstv. ráðherra við þeim ábendingum af því að þau bentu til þess að ekki væri sérstaklega mikill vilji innan ráðuneytisins til að taka á þessu. Ráðherrann hafi jafnvel ekki verið nestuð með þeim upplýsingum að þetta væri álitaefni af þeirri stærðargráðu að það hefði verið fjallað um það innan Stjórnarráðsins fyrir fjórum árum, heldur bendir ráðherra einfaldlega á að þetta hafi komið inn að ósk ríkislögreglustjóra og að samkvæmt þeim upplýsingum sem ráðherra hafi geti þessi gögn bara verið mjög gagnleg. Það eru reyndar rannsóknir víða um Evrópu sem benda til þess að gögn sem aflað var með með heimildum brottföllnu tilskipunarinnar hafi ekkert verið sérstaklega gagnleg fyrir löggæsluyfirvöld vegna þess að brotamenn á netinu hefðu einfaldlega mjög þægilegar leiðir til að komast hjá þeirri upplýsingasöfnun sem kveðið er á um í ákvæðinu. En mér finnst þetta ekki góður staður að vera á, að það dugi að löggunni finnist þægilegt að geta fengið allar þær upplýsingar sem myndast geta um fjarskiptanotkun allra í landinu og þar með sé það bara gott og vel. Ég ímynda mér að lögregluyfirvöld myndu aldrei afþakka heimildir til að safna gögnum umfram það sem þau gera á hverjum tíma heldur vilji alltaf fá fleiri upplýsingar frekar en færri. En það sem við hljótum að spyrja okkur hér í sal, það sem við þurfum að rýna í í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, er hvort þetta ákvæði uppfylli meðalhóf. Ég verð að segja fyrir mig, frú forseti, (Forseti hringir.) að miðað við það sem ég hef lesið í tengslum við systur þessa ákvæðis (Forseti hringir.) sem er í tilskipun Evrópusambandsins, hinni brottföllnu, held ég að svo sé ekki. Það sé augljóst að hér sé meðalhófs ekki gætt.