fjarskipti .
Frú forseti. Jú, ég held að ég deili þeirri skoðun með hv. þingmanni að hér sé fullþroskað frumvarp enda byggir það að miklu leyti á samevrópskri vinnu um regluverk fjarskiptamála. Fjarskipti, eðli máls samkvæmt, eru þjónusta sem nær yfir landamæri og þess vegna skiptir samræmingarþáttur regluverksins miklu máli og mikil og góð vinna var lögð í ýmislegt í frumvarpinu. En það eru atriði sem kalla á pólitíska skoðun. Til dæmis þetta með gagnageymdina sem snýst um það hvort við metum meir friðhelgi einstaklinga eða það að lögreglan geti aflað meiri gagna frekar en minni. Svo skulum við ekki gleyma því að þetta er náttúrlega mál sem er að koma fyrir þingið í þriðja sinn og fyrri tvö skiptin var það jafn fullþroskað en stjórnarliðar sín á milli náðu að stúta því í nefnd. Það var ágætlega farið yfir það í ræðu hv. þm. Bergþórs Ólasonar hversu langt málið var gengið síðasta vetur. Ég held að við höfum öll verið hissa þegar fallið var frá því að leysa það úr nefnd og beina til 2. umr. hér í sal. En það snerist bara um eitthvert karp á milli stjórnarflokkanna. Við hin skildum ekkert hvað það snerist um. Við gátum haft efnislegar athugasemdir við einstakar greinar en það kom aldrei til þess að um það væri rætt í umhverfis- og samgöngunefnd vegna þess að málinu var bara slátrað í einhverri kergju á milli stjórnarliða. Svo skulum við ekki heldur gleyma litla Mílufrumvarpinu (Forseti hringir.) sem leiddi í ljós töluverðan ágreining stjórnarflokkanna um ýmis efnisatriði sem var (Forseti hringir.) frestað til afgreiðslu þessa máls sem við eigum eftir að takast á við.