fjarskipti .
Frú forseti. Afnám gagnageymdarinnar í 89. gr. frumvarpsins snýst ekki um að svipta lögregluna einu eða neinu. Lögreglan mun áfram geta nýtt sér 92. gr. sem snýst einmitt um rannsókn sakamála þar sem henni er veitt heimild til þess að beina tilmælum til fjarskiptafyrirtækja um að veita aðstoð við rannsókn mála en styðja það þá einmitt við dómsúrskurð eða lagaheimild. Þetta er eðlilega ákvæðið. 3. mgr. 89. gr. er óeðlilegt ákvæði vegna þess að þar er sett sú skylda á fjarskiptafyrirtæki að halda upplýsingar um allt það sem allt fólk gerir á landinu í hálft ár ef lögreglunni skyldi detta í hug að banka upp á. Ég vísa bara aftur til þess að þetta hefur verið sambærileg heimild hjá Evrópusambandinu. Hún var rýnd af Evrópudómstólnum og metin ótæk vegna þess að meðalhóf væri ekki virt.