fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurningunni. Þetta er eitthvað sem umhverfis- og samgöngunefnd þarf að leggjast dálítið rækilega yfir vegna þess að þótt ég taki undir það sem hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir nefndi áðan, að hér virðist vera nokkuð fullburða frumvarp miðað við það sem við fáum í hendurnar og það hefur mikil vinna verið lögð í það, þá er áhrifamatið frekar þunnur þrettándinn. Hvaða áhrif hefur það að lengja bindingu samninga við fjarskiptafyrirtæki? Hér fyrr í dag í umræðunni velti hv. þm. Bergþór Ólason því upp hvort þetta gæti mögulega orðið til þess að lækka verð vegna þess að fyrirtæki gætu boðið fólki ígildi magnafsláttar með því að neytendur lofuðu þeim tryggð um lengri tíma. Mín fyrsta tilfinning var þveröfug. Það sem mér datt fyrst í hug var að styttri binditími gæti leitt til þess að neytendur væru kvikari og harðari við fyrirtæki og næðu þannig að knýja fram betri samninga, bæði hvað varðar gæði þjónustunnar en líka verð. En þetta bara hefur ekki verið metið í frumvarpinu. Þetta er eitt af stóru neytendamálunum í þessu frumvarpi og það liggur ekkert fyrir hver áætluð áhrif þessarar breytingar eru. Hér er bent á í greinargerðinni að regluverkið í Evrópu leyfi frá sex og upp í 24 mánuði og það er bara slumpað á miðjunni, sagt 12 mánuðir í frumvarpinu án þess endilega að við sjáum hvaða hugsun býr þar að baki. Eins og ég segi, þetta er eitthvað sem umhverfis- og samgöngunefnd þarf að rýna, eitt af mörgum atriðum sem þarf að skoða vel.