152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[17:00]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Hér er komið fram frumvarp sem varðar grundvallarhagsmuni og er mikið og stórt í sniðum, um 100 greinar eru undir, heildarlög um fjarskipti. Mikilvægir innviðir undir, eins og ég segi. Hér eru þættir sem lúta að samkeppni. Hér eru þættir sem lúta að neytendum. Hér eru þættir sem varða öryggisógnir Íslands. Hér eru þættir sem varða viðspyrnu ríkisins gegn náttúruvá. Í grunninn mætti kannski tala um þetta sem fjarskipti, fjarskiptaöryggi og þjóðaröryggi. Þetta frumvarp til heildarlaga hefur áður verið lagt fram en ekki náð fram að ganga. Ég hef hér í þessum sal spurt þingmenn, sem áður hafa setið í umhverfis- og samgöngunefnd, hverju það sæti og það virðist vera þannig að það sé vegna ríkisstjórnarinnar sjálfrar, þ.e. að málið hafi í einhverjum samningum þeirra í millum, þegar liðið hefur á þingið, einfaldlega ekki verið nægilega ofarlega á forgangslista. Mér finnst það sérstakt vegna mikilvægis þeirra hagsmuna sem hér eru að baki og vegna þess að þegar maður skoðar frumvarpið þá virðist sem það sé, eins og ég hef talað um, fullburða. Það er auðvitað ekki laust við pólitík og við munum ræða hana og jafnvel takast á um hana en mér sýnist að frumvarpið sé vel mótað og vel unnið.

Markmið frumvarpsins er að tryggja aðgengileg, greið, hagkvæm, skilvirk og síðast en ekki síst örugg fjarskipti hér á landi. Þetta ætti alltaf að vera ofarlega í huga okkar en er í aðstæðum dagsins í dag sérstaklega ofarlega í huga okkar. Talað er um að auka vernd og valmöguleika neytenda, að stuðla að virkri samkeppni sem er vitaskuld alltaf gott og göfugt markmið. Talað er um hagkvæmar fjárfestingar sem markmið og nýsköpun og að stuðla að því að öllum landsmönnum og fyrirtækjum bjóðist aðgangur að fjarskiptaþjónustu og háhraðanetum. Búið er að fara í ákveðnar greinar af hálfu þingmanna í dag og því ætla ég að víkja að nokkrum þáttum sem ég hlakka til að ræða betur þegar málið verður komið til umhverfis- og samgöngunefndar og rýna sérstaklega. Eins og ég segi þá finnst mér sérstakt að þetta mál hafi verið lagt fram á síðustu tveimur þingum en ekki náð fram að ganga því að það blasir við manni, þegar maður skoðar frumvarpið, og þegar verið er að lýsa núgildandi regluverki, að gildandi fjarskiptalög þarfnast endurskoðunar og það hafa þau gert um langan tíma. Við sjáum að hér er einu sinni sem oftar verið að leggja til að innleidd verði efnisákvæði nýlegrar tilskipunar Evrópuþingsins um setningu evrópskra reglna og við tölum um það hér sem Kóðann.

Það vakti athygli mína þegar við fengum kynningu á frumvarpinu, þó að það séu kannski í samhengi hlutanna ekki stórar upphæðir, að talað er um að kostnaður ríkisins geti aukist um allt að 185 millj. kr. á ári vegna aukins kostnaðar við starfsemi Fjarskiptastofu og mér sýnist nú, á þeim verkefnum sem stofunni eru falin, að það sé eðlilegur kostnaður. En ég get ekki séð að gert sé ráð fyrir þessu fjármagni í fjármálaáætlun. Ég vek athygli hæstv. ráðherra á því og þetta kom raunar fram við fyrstu yfirferð málsins í umhverfis- og samgöngunefnd. En eins og ég segi, það er von mín að frumvarpið verði að lögum og mér sýnist að hér sé komið fram frumvarp sem á vel að geta farið í gegn í þetta sinn.

Frumvarpið mun hafa áhrif á starfsemi fjarskiptafyrirtækja, sérstaklega þeirra sem reka fjarskiptanet, og það felur í sér auknar kröfur um upplýsingagjöf. Við vitum auðvitað að fjarskiptanet og fjarskiptaþjónusta eru undirstöður mikilvægrar samfélagslegrar og efnahagslegrar starfsemi og styrkleiki fjarskiptaneta skiptir gríðarlega miklu máli hjá öllum þjóðum, en ekki síst fyrir land eins og Ísland vegna aðstæðna hér á landi. Við erum í dag kannski mjög með hugann við þær hættur sem steðja að Evrópu nú þegar öryggi heimsálfunnar er ógnað en ég er hér að vísa í þær aðstæður sem við búum við vegna þeirrar náttúruvár sem hér vofir yfir.

Ég nefndi hér fyrr í dag að Norðurlöndin hefðu fyrir nokkru sett sér heildarlöggjöf um þessi atriði og okkur vantar núna — eins og ég segi, það er töluverð ráðgáta að þetta hafi ekki verið talið brýnna á síðasta kjörtímabili. Við vitum t.d. að NATO hefur ályktað um að alvarleg öryggisáhætta felist í því að nánast öll starfsemi í nútímasamfélagi sé háð fjarskiptanetum. Þegar samfélag er byggt upp eins og það er í nútímasamfélagi þarf þetta að vera stoð sem er þannig tryggð og þannig varin almenningi að það er einfaldlega ekki boðlegt að láta það hanga yfir okkur árum saman að uppfæra löggjöf í samræmi við þarfir. Sú skylda hvílir á okkur að tryggja að mikilvægir innviðir eins og fjarskiptainnviðir þoli áföll, þoli öryggisógnir. Það eru þessir þættir um náttúruvá sem ég nefndi og í aðstæðum dagsins í dag held ég að þungi hljóti að verða lagður í að afgreiða frumvarpið.

Ég ræddi um þetta mál þegar við vorum með svokallað Mílufrumvarp til umfjöllunar. Þá fannst mér hv. þingmenn Vilhjálmur Árnason, sem er formaður umhverfis- og samgöngunefndar, og Njáll Trausti Friðbertsson halda vel á spilunum. En þeir voru bara með óskaplega fá spil á hendi og góður bragur hefði verið á því að vinda sér í það strax að fara í vinnu við þetta frumvarp. Mér er minnisstætt að framsögumaður málsins talaði á sínum tíma, í tengslum við Mílumálið, um að afgreiða ætti þetta frumvarp vegna þess að eitthvað gæti gerst á næstu vikum og vegna þess að fjarskiptanet og fjarskiptaþjónusta væri undirstaða margvíslegrar mikilvægrar starfsemi, bæði efnahagslegrar og samfélagslegrar, og það er alveg rétt. Það er frumskylda ríkisvaldsins að gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi og áreiðanleika fjarskipta í landinu og þar undir eru, eins og ég segi líka, neytendasjónarmið og samkeppnissjónarmið með tilliti til þjóðaröryggis og almannahagsmuna.

Ég vildi líka nefna í þessu samhengi, af því að við erum að ræða um fjarskiptaöryggi, að árið 2016 var samþykkt þjóðaröryggisstefna, gríðarlega þýðingarmikið skref. En það blasir við manni að það hefur ekki mikið verið unnið, a.m.k. ekki nægilega mikið, með þá stefnu síðan af hálfu ríkisstjórnarinnar. Við vitum að frá árinu 2016 hafa þær breytingar í alþjóðasamfélaginu sem við höfum horft upp á verið dramatískar. Mikil þróun hefur orðið á sviði fjarskipta, í uppbyggingu ljósleiðara, í aðgangi að upplýsingum, blokkun á upplýsingum. Þarna er gríðarleg gerjun og hröð og ég nefni í því samhengi stöðugt tíðari fréttir af netöryggismálum sem ég held að við séum öll orðin betur meðvituð um og betur vakandi yfir en áður. Íslendingar og Norðurlandabúar stæra sig gjarnan af því að vera heimsmeistarar í notkun netsins, þ.e. hvað varðar aðgengi, en árið 2022 er þeirri keppni nánast lokið. Í dag snýst þetta samtal um að standa framarlega í netmálum ekki um aðgengi heldur um öryggi.

Ég staldra aðeins við 82. gr. um viðbúnað og hlutverk svokallaðrar netöryggissveitar sem á að aðstoða fjarskiptafyrirtæki við forvarnir, leiðbeina þeim og styðja við skjót viðbrögð gegn aðsteðjandi hættu. Ég veit að hér er ekki beinlínis um nýmæli að ræða. Þetta er sveit á vegum Fjarskiptastofu en ég tel að full ástæða sé til að ræða það mjög gaumgæfilega innan nefndarinnar hvernig Alþingi sér þetta hlutverk fyrir sér og til hvers það er ætlað. Þó að greinin fari yfir það með nokkrum hætti að sveitarinnar sé að greina og meðhöndla ógnir og öryggisatvik í netum og þjónustu fjarskiptafyrirtækja, fyrirbyggja og draga úr hættu á öryggisatvikum eins og kostur er og sporna við eða lágmarka tjón þá er margt undir sem ég bind vonir við að nefndin muni ræða vel og vandlega. Á fjarskiptafyrirtækjum hvílir sú skýlausa skylda að bregðast án tafar við tilmælum þessarar netöryggissveitar um aðgerðir gegn bráðri og aðsteðjandi netógn og það sama á við í tilviki mjög alvarlegrar áhættu eða atvika sem steðja að net- og upplýsingakerfi mikilvægra innviða eða opinberra stofnana, almannahagsmuna eða þjóðaröryggi. Töluverð umræða hefur verið um þetta í samhengi við NATO og þann grunnpunkt að árás á eitt ríki sé árás á öll, 5. gr., að netárásir geti náð þeim þröskuldi að teljast til slíkra árása. Eitthvað sem var kannski fjarlægt fyrir einhverjum mánuðum, og var inni allt að því formsins vegna, er í dag orðið mjög þýðingarmikið að rýna og skoða. Netöryggissveitin er að leitast við að greina netógnir og öryggisatvik á sviði fjarskipta á frumstigi og senda út viðvaranir í þeim tilgangi að styðja við skjót viðbrögð gegn aðsteðjandi ógn.

Í greinargerð er aðeins nánar vikið að því hvert hlutverkið er og til hvers er ætlast. En í samhengi við stöðu dagsins í dag, eins og ég er búin að nefna allnokkrum sinnum í þessari ræðu, veru okkar í NATO og þessa þætti sem við lítum töluvert öðrum augum en við gerðum fyrir nokkrum vikum, þá veit ég að umhverfis- og samgöngunefnd mun leggja allt sitt í að vandað verði til verka. Hér er risavaxið mál á ferðinni, bæði hvað varðar lengd og inntak. Mér sýnist borðleggjandi að það geti farið í gegn og mjög brýnt að það fái vandaða umfjöllun í ljósi þeirra hagsmuna sem eru að baki. Ég hefði gjarnan viljað sjá frumvarpið hafa orðið að lögum fyrr en við munum leggja allt okkar í það að þetta mál fái góða og vandaða umfjöllun í samræmi við þá hagsmuni sem hér eru að baki.