152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[17:22]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf):

Frú forseti. Í þriðja sinn fáum við hingað inn í þingið frumvarp til nýrra heildarlaga um fjarskipti. Gildandi fjarskiptalög þarfnast verulegrar endurskoðunar, ég held að við séum öll sammála um það. Það blasir við að þær gríðarlegu framfarir sem hafa orðið á fjarskiptatækni kalla á mikla endurskoðun laganna og því verður eiginlega að segjast eins og er að það er mikill ábyrgðarhluti hjá ríkisstjórninni að hafa verið að þvælast fyrir nauðsynlegum breytingum á fjarskiptalögum undanfarin ár, því miður. Ósamstaða var milli stjórnarflokkanna um að klára þetta nauðsynlega mál, ekki einu sinni heldur tvisvar. Nú erum við í þriðja skiptið komin með málið inn og maður veltir fyrir sér hvað veldur því. Hvaða atriði voru það sem töfðu fyrir? Var það mögulega það atriði að þeim var kunnugt um að verið væri að gera grundvallarbreytingar á þeim fjarskiptafyrirtækjum sem eru á Íslandi í dag? Getur verið að stjórnarflokkunum öllum eða hluta þeirra hafi verið kunnugt um mikilvægi þess að vera ekki með regluverk sem tryggði að grunninnviðir væru ekki seldir úr landi, að byggja þyrfti upp öryggisnet fyrir allan almenning í landinu? Af hverju spyr ég að þessu? Jú, vegna þess að frá því að fjallað var um þetta í fyrsta sinn hér í þinginu hefur Míla verið seld úr landi, þó að ekki sé búið að afgreiða þau viðskipti að öllu leyti. Samkeppniseftirlitið er að fjalla um málið. En ekki bara það heldur hafa önnur fjarskiptafyrirtæki líka tekið miklum breytingum. Fjarskiptafyrirtækið Nova, ég veit ekki betur en að þar hafi innviðirnir líka verið seldir. Það blundar í manni efasemdarangi og maður veltir fyrir sér hvort þetta geti hafa verið ástæðan fyrir því að málið komst ekki í gegn.

Við tölum öll hér, bæði stjórnarliðar og stjórnarandstaðan, um mikilvægi þess að þetta mikilvæga plagg nái fram að ganga. Hæstv. innviðaráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson hefur komið fram í fjölmiðlum dagsins og kvartað undan málefnalegri umræðu í þinginu. Hann talar um að stjórnarandstaðan sé að halda þinginu í gíslingu þegar fyrir liggur að ríkisstjórnin, sem hann er ráðherra í, er að leggja þetta mál fram í þriðja sinn. Í þriðja sinn erum við hér í 1. umr. um þetta sama mál og þetta er hans ríkisstjórn sem samanstendur af sömu flokkum. Það er vissulega nýtt ráðuneyti sem er að flytja þetta mál. Það er ekki lengur hann, það er nýr ráðherra, hæstv. háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, sem skyndilega er kominn með fjarskiptin. En engu að síður er þetta sama ríkisstjórn sem flytur þetta mál enn einu sinni. Af hverju klára þau ekki málið? Af hverju hafa stjórnarflokkarnir verið að þvælast fyrir málinu? Þetta er mjög mikilvægt þjóðaröryggismál. Þá skiptir máli að klára það.

Sú sem hér stendur kallaði eftir því að frumvarpið kæmi inn í þingið hér í desember en ekki sá stubbur sem var verið að þvælast með í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Af hverju gátum við ekki bara haft trygginguna þá? Nú erum við hér í lok mars og ég get svarið það að ég held að það sé jafn langur tími eftir, mögulega færri þingfundadagar eftir og færri nefndadagar, í dag, 29. mars og fram að áætluðum þinglokum en var þegar Mílufrumvarpið svokallaða var lagt fram í þinginu í miklu óðagoti og varð að klárast fyrir lok janúar eða hvenær það var sem það var samþykkt. Ég held að við hefðum getað klárað þetta á þeim tíma, rétt eins og Mílumálið, ef við hefðum fengið það inn af því að þetta er mál sem við þekkjum vel. Þetta er að koma inn í þriðja sinn. Það hefði í rauninni átt að gera þetta þannig.

Með frumvarpi til fjarskiptalaga er markmiðið að samræma landsrétt samevrópsku fjarskiptaregluverki. Með því á að tryggja aðgengileg, hagkvæm, skilvirk og örugg fjarskipti hér á landi. Ljóst er að markmiðin eru mikilvæg og ekki annað hægt en að fagna því að frumvarpið sé komið fram, sé lagt fram á Alþingi, enda eru örugg fjarskipti algjör grundvallarforsenda þess að tryggja þjóðaröryggi. Og það er nú ekki lítið sem við tölum um þjóðaröryggi þessa dagana. Sá vandræðagangur og sú töf sem orðið hefur á málinu er grafalvarleg í ljósi þjóðaröryggis en í frumvarpinu er að finna mikilvægt ákvæði um öryggishagsmuni vegna uppbyggingar svokallaðra farneta. Tilgangur þess ákvæðis er að taka mið af vaxandi þörf og vaxandi kröfum sem flest ríki, auðvitað ekki öll en alla vega flest ríki sem við berum okkur saman við, hafa talið sig knúin til að mæta til að efla öryggi innviða sinna. Markmiðið er að draga verulega úr líkum á því að erlend ríki, sem telja sig hafa hagsmuni af innlendum málum, geti stundað hér það sem í einhverja tíð var kallað njósnir og er eflaust enn. Það er gríðarlega mikilvægt að reyna eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að slíkt geti þrifist hér. Í þeim breytta veruleika sem við horfum nú fram á, ekki bara hér á Íslandi heldur um allan heim í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu, ætti það að vera algjört forgangsmál að tryggja örugg fjarskipti hér á landi. Til að svo megi verða er ekki nóg að samþykkja bara ný fjarskiptalög því það þarf að tryggja og treysta innviðina. Það þarf að tryggja fjármagn til Fjarskiptastofnunar svo hún geti sinnt því eftirlitshlutverki sem verið er að auka verulega samkvæmt frumvarpinu. Hún geti reynt að tryggja að þessir grunninnviðir séu ávallt til staðar. Fjarskiptastofa fær nú í hendurnar að meta hættu á grundvelli öryggishagsmuna, meta hættu á því hvort farnet á landsvísu séu eða geti orðið mjög háð búnaði frá einum framleiðanda og er stofnuninni heimilt að binda leyfið skilyrðum er stuðla að fjölbreytni í gerð búnaðar. — Frú forseti. Það væri gott ef það væri líka hér í pontu vatnsglas fyrir ræðumenn.

Mig langar einnig að ræða hér aðeins um öryggi vegfarenda og öryggi íbúa landsbyggðarinnar. Grunnnet fjarskipta er gríðarlega mikilvægt öryggistæki sem stjórnvöldum ber að tryggja að sé aðgengilegt öllum landsmönnum. En, frú forseti, svo er því miður ekki. Vert er að rifja upp ummæli hv. formanns velferðarnefndar, hv. þm. Líneikar Önnu Sævarsdóttur, í kostulegu Kastljóssviðtali á dögunum. Þar var verið að ræða aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu. Verandi þingmaður af landsbyggðinni þá þekkir hún auðvitað mjög vel hversu lélegt fjarskiptasamband getur orðið á landsbyggðinni. Ég þekki það líka enda ek ég mikið vestur á firði og þar er maður heppinn ef maður kemst í símasambandi á leiðinni. En hv. þingmaður og formaður velferðarnefndar talaði um að það hefðu allir einhvers konar aðgang að heilbrigðisþjónustu af því að það væri alla vega hægt að hringja í einhvern heilbrigðisstarfsmann þó að ekki væri hægt að hitta neinn heilbrigðisstarfsmann, en skaut svo inn í: Ja, þar sem er símasamband.

Frú forseti. Þetta er nefnilega raunveruleikinn á Íslandi árið 2022 að það er ekki einu sinni símasamband alls staðar. Hugsið ykkur. Þetta ríka samfélag hefur ekki tryggt að allir landsmenn eigi þess kost að hringja í Neyðarlínuna ef eitthvað kemur fyrir. Við sáum þetta í óveðrinu 2019, í desember, að það var ekki bara vegna þess að möstur lögðust niður heldur voru einfaldlega bæir utan þjónustusvæðis. Auðvitað var rafmagnsleysi þá líka en það var bara ekkert símasamband. Við höfum líka séð þetta í umferðaróhöppum á þjóðvegum landsins sem leitt hafa til dauðsfalla af því að ekki var hægt að hringja á neyðaraðstoð. Þeir sem komu að slíku slysi þurftu að keyra um langan veg til að komast í símasamband til að geta hringt á viðbragðsaðila. Það er auðvitað ekki boðlegt, frú forseti. Við verðum að gera betur en þetta.

Ég velti fyrir mér hvort verið sé að bregðast á einhvern hátt við þessu í ákvæði 38. gr. Ég átta mig ekki á því. Þar er verið að veita Fjarskiptastofu heimild til að leggja kvaðir á fjarskiptafyrirtæki og aðra aðila eftir því sem nánar er tiltekið í ákvæðinu og eru þar tilgreind mjög mörg atriði. Ég átta mig satt að segja ekki á því og hlakka til að fá að vinna þetta mál í hv. umhverfis- og samgöngunefnd þar sem ég sit. Þar kemur fram, með leyfi forseta:

„Fjarskiptastofa getur lagt kvaðir á fjarskiptafyrirtæki sem bjóða þráðlausa fjarskiptaþjónustu um að þau veiti aðgang að óvirkum netþáttum eða bjóði svæðisbundna reikiþjónustu ef nauðsynlegt er að tryggja svæðisbundinn aðgang að þráðlausri þjónustu og að ekki sé til staðar önnur svipuð og raunhæf leið til að veita endanotendum aðgang.“

Ég veit ekki hvort þetta er það sem málið snýst um eða hvort það er einhvers staðar annars staðar í þessu mikla frumvarpi upp á hundrað greinar. Ég var að reyna að átta mig á hvort við værum þarna með ákvæði, skýrt ákvæði, um að það yrði hreinlega að tryggja þjónustuna. Í 71. gr. er líka verið að tala um gæði fjarskiptaþjónustu, að það sé lágmarksgrunnþjónusta og Fjarskiptastofu sé heimilt að setja reglur um slíka þjónustu. En ég veit ekki betur en að það hafi verið einhverjar reglur um það áður, þ.e. þær skyldur, án þess að verið sé að ganga á eftir því að það sé tryggt af því að svo er hangið á línunni, ef svo má segja.

Virðulegur forseti. Það er gott að þetta frumvarp hafi komið fram. Það ber þess þó merki að vera enn eitt dæmið um skort á samstöðu innan ríkisstjórnarinnar, að það hafi ekki verið klárað fyrr, en við skulum vona að stjórnarandstöðunni takist að koma því á leiðarenda eins og mörgum öðrum framfaramálum.