152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[17:39]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Já, margt megum við þakka Evrópusambandinu, t.d. að búa til regluverk sem skilyrða fjarskiptafyrirtækin að veita fjarskiptaþjónustu og hanga ekki á línunni, eins og ég orðaði það, heldur að leyfa línunni að ganga áfram án þess að símtalið rofni. Þá kemur að þessu með innviðina, hvort það sé tryggt að hinir fýsísku innviðir séu til á vegunum, að það sé eitt sem taki við af öðru ef svo ber undir, að það sé tryggt að það náist samband alls staðar í hinum fallegu fjörðum Vestfjarða, svo dæmi sé tekið, þar sem hvorki útvarp næst né farsímasamband á köflum á þjóðveginum, sem er hringvegurinn okkar. En þá þarf bara að tryggja það að svo verði.