152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[17:46]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er að reyna að átta mig á spurningunni. Ég vona eiginlega að hv. þingmaður hafi verið að spyrja um þróunina á gæðunum og hvort einhver bæting hafi orðið eða hvort þetta frumvarp komi til með að bæta eitthvað. Ég átta mig ekki alveg á því. Ég get þó sagt að það hefur batnað aðeins á þeim árum sem liðin eru frá því að ég fór að venja komur mínar fyrst þangað vestur. Vegirnir hafa líka batnað aðeins. Það er auðvitað grundvallaratriði ef rétt er og ef það tekst, eins og lofað var af hæstv. ráðherra, að hafa samhangandi farsímakerfi alla leiðina eins og lofað er að sé í þessu frumvarpi, að verið sé að tryggja að eitt farsímafyrirtæki sleppi áður en símasambandið slitnar og færi þá öðru. En ég velti því fyrir mér hvort þessir grunninnviðir séu fullnægjandi, hvort sambandið sé einfaldlega fullnægjandi. Það einskorðast auðvitað hreint ekki við Vestfirði, ég veit að þetta er víða annars staðar svona. Erum við með nógu gott net af sendum til að tryggja að við séum með þetta samband hringinn í kringum landið? Ég er ekki alveg viss. En það hefur batnað, almáttugur, á síðustu 20 árum, annað væri nú, myndi ég segja, í ríkidæminu á Íslandi.