fjarskipti .
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og biðst forláts á hversu óskýr ég var í spurningu minni. Ég áttaði mig á því þegar ég var sestur í sætið að það var kannski erfitt að ráða í akkúrat hvað það var sem ég var að fara. En punkturinn minn var í rauninni að fá fram mat þingmannsins á þeim miklu lífsgæðum sem felast í því að farsímasamband á þjóðvegum batni og á sama tíma að lýsa yfir svekkelsi mínu á því að þetta sé að gerast löngu síðar en hefði getað orðið vegna drolls ríkisstjórnarflokkanna og þeirra furðulegu aðgerða þeirra á síðasta þingi að svæfa málið. Á undanförnum 20 árum batnaði farsímasambandið umtalsvert með ýmiss konar útboðum og stuðningi en ég held að það hafi verið að versna á undanförnum árum vegna þessara takmarkana í reikisamningum. Það er sá hnútur sem við erum að höggva á með þessu máli. (Forseti hringir.) Þess vegna er ég alveg óendanlega svekktur yfir að ríkisstjórnin hafi dregið þetta lengur en þörf var á og mögulegt var.