152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[17:49]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Já, það er nú betra að skilja spurninguna. Það er auðvitað grundvallarforsenda að hafa þetta samband af því að við byggjum samfélag okkar á því núna. Við gátum mögulega lifað hérna fyrir 100 árum án þess að vera með símasamband, þá var samfélagið bara annars konar. En í dag er grunnþjónusta að vera með þetta samband, það er nauðsynlegt í lífi og starfi hringinn í kringum landið. Og af því að nú er talað fjálglega um störf án staðsetningar þá gerum við það auðvitað ekki án þess að hafa fullnægjandi samband. Ég er hins vegar pínu hikandi við að fagna stórkostlega af því að það stendur líka í heildarlögum um heilbrigðisþjónustu, í þingsályktunartillögu um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, að allir landsmenn eigi að hafa tryggan aðgang að heilbrigðisþjónustu. (Forseti hringir.) En svo er það ekki þannig. Það er ríkisstjórnarinnar að framfylgja lögunum, (Forseti hringir.) koma þeim í framkvæmd, en hún gerir það ekki þannig að við skulum sjá.