fjarskipti .
Forseti. Mér fannst áhugavert þegar hv. þingmaður minntist á hvernig það er í raun ríkisstjórnin sem hefur tafið þetta mál og er minnisstætt undir lok síðasta kjörtímabils þegar þetta mál festist óvart inni bak við þinglokasamninga. Stjórnarandstaðan sagði: Já, þetta er mikilvægt mál og við erum alveg tilbúin til að losa þetta úr þinglokasamningum og fá þetta áfram. En það var ekki hægt því að ef þetta mál hefði farið út frá samgönguráðherra hefðu allir hinir ráðherrarnir líka þurft að fá eitt mál og ríkisstjórnin gat ekki fundið það hjá sér að komast að þeirri niðurstöðu. Það var ríkisstjórnin sem var með þetta mál í gíslingu, mjög áhugavert.
Í tengslum við það þá eru nokkur atriði í þessu máli sem eru mun eldri. Ég man þegar ég var í umhverfis- og samgöngunefnd og þá vorum við að glíma við það sem er í 83. gr. um netöryggissveit og það að ef Fjarskiptastofa telur það nauðsynlegt skuli fjarskiptafyrirtæki og netöryggissveitin gera með sér samning um uppsetningu og rekstur tæknilegrar vöktunarþjónustu sem gæti innifalið búnað eða netkerfi sem tengist vöktun netöryggissveitar. Það þýðir að netöryggissveitin getur bara farið og sett búnað inn í tölvuver fjarskiptaþjónustufyrirtækisins og einfaldlega verið að njósna. Það er einfaldlega þannig. Það er verið að koma fyrir njósnabúnaði hjá fjarskiptafyrirtækinu. Þetta er atriði sem við höfðum verið að glíma við í fyrri málum af þessu tagi og hér ratar það enn og aftur inn á okkar borð þegar búið er að hafna því aftur og aftur af því að það er einfaldlega varhugavert að hafa slíkan búnað ofan á reyndan fjarskiptabúnað (Forseti hringir.) sem fyrirtækin nota. Það er vandamál að bæta við einhverju öðru tæki sem er ekki endilega samhæft, það er mikið vandamál.