fjarskipti .
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta andsvar. Ég les það í erlendum fjölmiðlum að einhver mesta ógn sem steðjar að okkur hér séu netárásir. Það var jafnvel áður en Rússar hófu stríð gegn frjálsu fullvalda ríki, Úkraínu. Eftir að stríðið hófst hefur tilraunum til að valda usla á netinu, ég þekki þetta ekki nógu vel, fjölgað, það eru 5.000 sinnum fleiri innrásartilraunir. Ég held að hryðjuverk geti jafnvel orðið jafn svakaleg ef ráðist er á þessa grunninnviði eins og byggingar. Þá er ég ekki að tala um mannslíf. En jú, það er hægt að fara inn í allt kerfið okkar. Það er hægt að lama allt kerfið okkar. Ég þekki ekki nógu vel búnað eða önnur tæki. Hvernig er hægt að verjast því? Kannski er það af því að ég er ekki Pírati, það getur verið. (BLG: Heyr, heyr …) Ég hef bara bullandi áhyggjur af þessu. Ég verð að viðurkenna það.