152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[17:55]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Kannski verður hv. þingmaður bara Pírati þegar hún kynnist þessu betur, hver veit. En þetta er lykilatriði í því hvernig þessi búnaður virkar. Gerður er fjarskiptabúnaður sem er með sínar kröfur og gæðaeftirlit og ýmislegt svoleiðis og þegar aukatæki er bætt við til að vakta virkni hans á ákveðinn hátt getur það haft ókunnar afleiðingar, bætt við ákveðnum villum og þess háttar í þeirri stöðluðu virkni sem búist er við að virki án aukahluta sem slíkra. Hér er einmitt tekið fram að fjarskiptafyrirtæki sé skylt að hýsa og samtengjast endurgjaldslaust þeim búnaði netöryggissveitar sem Fjarskiptastofa telur nauðsynlegan. — Allt í einu breyttist tíminnn hratt hjá mér, ég átta mig ekki alveg á því hvað gerðist þarna.

En ég vildi bara vekja athygli hv. þingmanns á þessu út af setu hennar (Forseti hringir.) í umhverfis- og samgöngunefnd, að vakta sérstaklega þetta atriði. Ég veit að það koma örugglega athugasemdir frá helstu sérfræðingum okkar í netöryggismálum varðandi þetta atriði.

(Forseti (JSkúl): Svo háttar til að það er ein mínúta í síðari umferð í andsvörum.)