152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:17]
Horfa

Helga Þórðardóttir (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Það var kannski bara eitt. Hv. þingmaður hefur greinilega mjög mikið vit á fjarskiptasambandi en telur hann að í þessu frumvarpi — nú er ég kannski að opinbera vanþekkingu mína á þessu þar sem ég er nýr þingmaður og hef ekki náð að kynna mér þetta í þaula — sé eitthvað sem ýti undir það að fjarskiptin á vegum og í dreifbýli verði betri?