152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:17]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki heldur náð að lesa í gegnum allar síðurnar 131 í þskj. 666. En það hefur verið þannig víða um heim að fjarskiptafyrirtæki eru látin borga ákveðið gjald sem síðan á að nýta í það að bæta og borga fyrir að setja upp þjónustu á þessum blettum. Nú veit ég ekki hvort slíkt er enn í þessu frumvarpi, þetta hefur verið í fyrri frumvörpum, held ég, en það er nákvæmlega þannig sem þarf að gera þetta. Það þarf að taka pening til hliðar af því sem fæst fyrir leyfisgjöld og tíðnir og annað og nýta hann til þess að bæta sambandið á þeim svæðum þar sem það er enn slæmt og ég vona að hæstv. ráðherra hafi sett slíkt ákvæði hér inn.