fjarskipti .
Frú forseti. Við lifum á tímum alþjóðlegra fjarskipta. Hér í gamla daga, til að taka niður símkerfi, þá hefði maður þurfti að nota aðferðirnar sem voru í kvikmyndinni Kona fer í stríð og ná niður símavírunum, miklu flóknara heldur en að geta setið kannski á sólarströnd á Tenerife og verið með tölvu í hendinni og ráðist á heilt ríki. Það er því miður þannig að við sem samfélag hér á Íslandi höfum ekki tekið þessari ógn nógu alvarlega. Það er kannski eins og með margar aðrar ógnir sem við þurfum að eiga við hér á landi; það er ekki fyrr en eftir að ógnin er búin að koma sem við fyrst byrjum að byggja upp viðbúnaðinn.