152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:27]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svörin. Það skiptir auðvitað mjög miklu máli hvernig ríkið nýtir tekjurnar sem það hefur af slíkum gjöldum og af auðlindarentu. Að sjálfsögðu er ég þeirrar skoðunar að þær tekjur eigi að nýta til að jafna aðgengi og jafna aðstöðumun, m.a. á milli landshluta, sérstaklega þegar fjarskipti eru annars vegar. En það er hægara um að tala en í að komast. Ég skal alveg viðurkenna að ég á eftir að skoða frumvarpið miklu betur en mér sýnist samt að þetta sé svona, að þetta sé ófullkomið auðlindalíkan sem hér er verið að vinna með, þó svo að ég viti auðvitað að verið er að greiða fyrir tíðnisviðin. Þá þurfum við, þingheimur, að skoða mjög vel hvaða tekjur ríkið hefur af þessu og hvernig þær nýtast best til að tryggja fjarskipti um allt land.