152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:28]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni, það er mikilvægt að það sé gagnsæi í þessu. Ég tel mikilvægt að umhverfis- og samgöngunefnd fjalli vel um 13. gr. og þau módel sem þarna eru fyrir. Við höfum líka talað mikið um netöryggi og það er heldur ekki ókeypis að reka netöryggissveit og ekki er heldur auðvelt að halda utan um alla þessa mikilvægu innviði og það er ekki frítt. Ég held því að þegar það módel verður búið til, um það hvað á að rukka fyrir þessa auðlind, þá þurfum við að passa að það jafni aðganginn en líka að það hjálpi til við að standa undir þeim kostnaði sem hlýst af því að halda utan um jafn mikilvægan innvið og hér er verið að tala um.