152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:29]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta var á margan hátt mjög áhugaverð ræða og margt sem væri gott að geta spurt út í hér. En tíminn er takmarkaður og því ætla ég að reyna að afmarka spurninguna. Ég myndi kannski ekki leita til Pírata um ráðgjöf á öllum sviðum en það verður ekki af þessum flokki tekið að hann hefur yfirleitt verið skipaður fólki með mikla þekkingu á tölvu- og fjarskiptatækni og ég held að það sé ekki nein móðgun í því falin að segja að flokkurinn eigi rætur í hópi hakkara jafnvel og annarra sérfræðinga á sviði tölvumála. Því langaði mig að spyrja hv. þingmann hvort hann telji að það vanti einhver sérstök atriði hvað varðar net- og upplýsingaöryggismál inn í þetta frumvarp. Ég er ekki að biðja um tæknilega útfærslu í einnar mínútu andsvari, en vantar hugsanlega heilu kaflana um það sem við þyrftum að vera að gera á þessu sviði?