152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:49]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er gott að ég tala hratt, ég ætla að reyna að koma þessu að. Varðandi 87. gr. kannski fyrst, það voru auðvitað skoðaðar ýmsar aðrar leiðir milli þess að frumvarpið kom hér síðast fyrir. Er betra að fara einhverja aðra leið? Menn veltu því mikið fyrir sér í samvinnu við utanríkisráðuneytið, sérstaklega af því að það er mjög mikilvægt, er mjög skýrt og þarf að vera mjög skýrt í þessari umræðu, að ef það á að takmarka notkun búnaðar — það er ekki verið að segja í frumvarpinu að það eigi að gera það heldur að það þurfi afmörkun og rökstuðning hvaða hlutar fjarskiptaneta, í heild sinni eða í ákveðnu hlutfalli, teljast þá viðkvæmir með tilliti til almannahagsmuna og þjóðaröryggis. Það þarf síðan verulegan rökstuðning og almannahættu til að beita greininni þannig að ef grípa á til 3. mgr., sem mér fannst hv. þingmaður aðallega verið að tala um í 87. gr., þá þarf að fá umsagnir frá ráðherra sem fara með utanríkis- og varnarmál, almannavarnir og löggæslu. Takmarkanirnar geta bæði falist í kröfu um að búnaðurinn sé frá framleiðanda í ríki sem Ísland á í (Forseti hringir.) öryggissamstarfi við eða innan EES eða hann hafi bara verið samþykktur til sambærilegra nota í ríkjum sem Ísland á í öryggissamstarfi við. En ég kemst því miður ekki yfir meira.