152. löggjafarþing — 59. fundur,  29. mars 2022.

fjarskipti .

461. mál
[18:51]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir og það er gott að heyra að það hafi verið farið vel og vandlega yfir þetta. Það er rétt, tíminn er ekki langur, en ég vil samt spyrja. Ef tími gefst fyrir umsagnir frá þessum ráðherrum, var það skoðað að hafa þingið með í slíku? Þá er ég ekki tala um hefðbundin nefndarstörf heldur umræðu á þingi. Það sem kannski hefur gerst frá því að þetta kom fyrst til tals í fyrstu útgáfu fjarskiptalaga er að hér fór heilt samfélag og heimsbyggðin á hvolf vegna kórónuveirufaraldursins og ég held að við hljótum öll að vera sammála um að þingið stóðst þá raun og brást hratt og vel við mjög íþyngjandi inngripum stjórnvalda á hinum ýmsu tímum og það var sannarlega ekki til að hægja á neinu heldur frekar að styrkja stöðu ríkisstjórnarinnar og einstakra ráðherra í erfiðum aðstæðum. Þannig að ég spyr: Var það skoðað að gera þingið — samsekt er nú ekki rétta orðið þó að það sé eina sem kemur upp í hugann, en að hafa þingið með í ráðum?